Friday, April 21, 2006

BREYTINGAR... JÁ TAKK!!!

Eiginmaður: kæra eiginkona, mér finnst vera breytingar í aðsígi fyrir okkur.
Eiginkona: nú kæri bóndi minn, hvernig breytingar?
Eiginmaður: eigi veit ég það virðingarfyllst eiginkona, en andi minn segir mér það (heilagur andi).
Eiginkona: á hvaða sviði í lífi okkar verður það heldur þú, ástkæri eiginmaður minn?
Eiginmaður: bara algjör tremma breyting á lífshögum okkar, Guð ætlar að blessa okkur á einhvern hátt sem okkur grunar ekki!!!
Eiginkona: spennandi!!!

Jebb... þetta eru umræður sem áttu sér stað fyrir mánuði síðan hjá okkur hjónum og Ingvar hefur talað um þetta nokkrum sinnum síðan. Okkur grunaði að þetta væri vinnutengt en vissum ekki hverskonar umvending myndi eiga sér stað (og ég skal segja ykkur það nú þegar ég veit hvað það er að mig hefði ALDREI grunað þetta, við erum í skýjunum).

Málið er að við sögðum bæði upp í vinnunni okkar fyrir nokkru síðan og höfum verið að vinna uppsagnarfrestinn. Ingvar fékk strax aðra stöðu sem smiður en hann talaði alltaf um að líkaminn hans væri ekki alveg að meika þessa vinnu lengur því að þetta eru það langir vinnudagar að hann kemst aldrei í líkamsrækt til þess að styrkja líkaman svo að hann geti þessi líkamlegu erfiði... míkrenið hefur verið að koma næstum vikulega núna undanfarið og hann er búinn að vera að fá léleg laun og hrillilega mikið að gera fyrir utan vinnu en eiginlega enginn kraftur til að framkvæma það. T.d. skólinn, unglingastarfið sem Ingvar myndi ekki vilja gefa upp og svo auðvitað fjölskyldan. Ingvar sagði einnig um daginn að honum finndist eins og hann yrði ekki smiður í framtíðinni, hann ætlaði samt að klára námið því að það er gott að hafa þessi réttindi og þau opna margt annað. Einhverra hluta vegna (prédikun hjá Friðrik Schram) fékk Ingvar til að hugsa um þá drauma sem hann hefur átt um ævina og það voru nokkrir hlutir sem komu upp í huga hans og viti menn Guð hefur látið þann ólýklegasta rætast í dag, gott fólk!!!

Fyrir mína parta... þá hefur þetta verið rekar erfiður vetur... var að vinna á næturvöktum og líkaminn minn er orðinn mjööög veikburða þrátt fyrir ungan aldur og það, hann er bara að segja stopp. Ég á að losna um mánaðamótin (og Ingvar líka) en ég var búin að biðja um að fá að vinna út mai og júní (spurði áður en líkaminn gaf sig svona). Þetta hefur haft áhrif á allt í mínu lífi, hvort sem það er fjölskyldan, unglingastarfið, heimilisstörf, líkamsrækt og það allt. Ég talaði við vinnuveitandan minn í byrjun þessara mánaðar og spurði hvort mögulegt væri að ég gæti hætt þegar uppsagnafresturinn væri búinn og hún sagði að hún ætlaði að vita hvort einhver gæti tekið við stöðunni minni. Þegar mánuðurinn var hálfur liðinn og hún ekkert haft samband, þá sagði ég við Guð "ok Guð, ef hún finnur engan þá verður þú bara að gefa mér aukakraft til að meika þessa tvo mánuði í viðbót, en ég bið þig, getur þú fundið einhvern annan fyrir mig, því að ég trúi því bara ekki að það sé þinn vilji að ég útjaski líkamanum mínum meir". Kæru lesendur, klukkutíma seinna hringir yfirmaður minn og tilkynnir mér það að maður hefur verið fundinn og ég geti hætt um mánaðarmótin. Takk Jesús. Þá fer ég að hugsa að ég þarf helst vinnu í mai og júní, bara á morgnanna vegna þess að ég vil vera heima með börnunm mínum eftir hádegi. Ég hugsa að Guð hljóti að vera með eitthvað fyrir mig og ég gæti ekki ímyndað mér hvað það væri því að ég veit að þetta er ekki spennandi fyrir vinuveitanda að ráða manneskju bara í tvo mánuði, bara fyrir hádegi! En ég verð aldrei stressuð yfir þessu, því að ég er bara alveg viss um að Guð hafi eitthvað fyrir mig. (en ekki grunaði mér það sem varð!!!)

Jæja... nú fer forvitni ykkar og spennu að verða svalað því að nú kemur sagan af seinustu tveim dögum!

Ég og Addý fórum í heimsókn til Erlu Káradóttur og Önnu Birnu dóttur hennar og Kjartans pabba hennar (sem var svo góður við okkur stelpurnar, gaf okkur girnilegan skyrhræring og fínerí ;) Takk kærlega fyrir Kjartan minn hahahhahaha þetta var geggjað go...súrt hahahhahah ;) ) og við Erla erum sem sagt að spjalla saman og hún spyr mig hvort ég vilji taka við búðinni þeirra HIGH AND MIGHTY en ég segi henni að ég er að fara í skóla í haust og því geti ég það ekki... við spjöllum meira um allt og ekkert (takk Erla fyrir vináttu þína, hún er mér ROSALEGA dýrmæt)... 4 tímum seinna... HEY... EN INGVAR!!! Þetta kemur eins og byssuskot í hugan minn. Allt í einu komu hugsanirnar um þetta til mín, ég fer að segja Erlu frá stórum draum sem Ingvar á. Honum hefur alltaf langað til að reka fatabúð, ekki svona vélrænni búð (eins og 17 eða Deres) heldur búð þar sem hann gæti veitt mjög persónulega þjónustu, vera með lítið kaffihorn í búðinni og gjörsamlega dekra við viðskiptavinninn. Ingvar er mjög nærgætinn og notaleg persóna sem fólki líður vel í kringum og þeir viskiptavinir sem koma þarna inn þurfa einmitt á svoleiðis að halda (þetta er stílað inn á stóra karlmenn, stóra á alla kanta, sem finna ekki föt á sig annarstaðar, nema að láta sérsauma). Allavegna... ég hlakkaði mikið til að segja Ingvari frá þessari hugmynd og ég byrjaði strax að biðja fyrir því að foreldrar hennar Erlu myndu taka vel í þetta ef þetta væri eitthvað sem Guð væri að færa fram og opna. Ég fann í anda mínum að þetta væri gott. Ég talaði við Ingvar og honum leist ekkkert smá vel á þetta, ég spjallaði við Erlu um kvöldið og hún sagði að foreldrar hennar væru gjörsamlega í skýjunum yfir þessu! Svo fórum við í gær til þeirra, fengum geggjaða franska súkkulaðiköku a la Erla (takk fyrir hana... næstum því eins góð og skyrið hjá Kjartani ;) ) og áttum yndislegt spjall við þau öll saman...(enda ekki annað hægt þegar þau eiga í hlut, þetta fólk Kári og Anna eru svo mikið EÐAL fólk og vita það allir sem þekkja þau!!!!!)

Málin standa sem sagt svona í dag...
- Ingvar er að verða verslunarstjóri í verslununni High and mighty...
- Ég verð aðstoðamanneskja hans fyrstu tvo mánuðina, fyrir hádegi (kemur á óvart... NEI, bara nákvæmlega það sem ég þurfti og Guð vissi það)
- Við tvö munum fara í innkaupaferðir til Englands tvisvar á ári.
- Vinnutíminn hans verður 11-18... getur farið í líkamsrækt á morgnanna og undirbúið sig fyrir unglingastarfið.
- Líkamleg vinnan verður ekki sú sama
- Draumur verður að veruleika.
- Glæ ný tækifæri, ný reynsla
- Umbilting á lífi okkar!!!
Við vitum að þetta verður mikil vinna en við erum tilbúin að takast á við nýtt og treystum því að Guð hafi látið okkur þangað því að það verður okkur til blessunar og versluninni til blessunar og framdráttar.

Við getum ekki annað en gefið Guði dýrðina og þakkað honum óendanlega fyrir hversu góður Guð hann er og elskar börnin sín mikið... Takk elsku Jesús hvað þú ert yndislegur, viltu leiða okkur áfram í þessu og gjöra sléttan veg þig fyrir okkur, við elskum þig svo heitt, það er ekkert sem við getum gert til að verðskulda gæsku þína til okkar og takk fyrir að elska okkur þrátt fyrir hvað við erum mannleg... við tilheyrum þér alltaf og ávallt!!!!!

Mig langaði bara til að deila þessu með ykkur elsku lesendur mínir og hver getur sagt eftir þetta að Guði er enginn hlutur um megn og að vegir Guðs séu órannsakanlegir... allavegna ég og ég trúi því að þú getir það líka ;)

Kær kveðja til ykkar frá mér...
Ágústa Ósk

Sunday, April 16, 2006

Gleðilega hátið.

GLEÐILEGA PÁSKA
Í dag er svo sannarlega gleðidagur því að hann á fullt af minningum um að JESÚS er ekki lengur dáinn. Hlið heljar er ekki lengur ógnun fyrir okkur því að við eigum lífsins lykil. Og allt það vegna þess sem Jesús gerði fyrir okkur fyrir tæpum 2000 árum síðan þessa seinustu 3 daga!
Hvernig getur maður annað en glaðst???
Ég veit það ekki og ég ætla ekki að reyna það einu sinni, ég er svo glöð í Guði mínum og ég hvet ÞIG til að gleðjast í dag.
Hlýjar páskakveðjur til þín frá mér...

Wednesday, April 12, 2006

Allt að koma...

Góðan dagin gott fólk...

Í fréttum er þetta helst...

Mér líður miklu betur, er núna á því tímabili sem hitinn er að læðast út úr líkamanum og skilur eftir sig raka þegar hann fer út um dyrnar skiljiði... þetta var pent orðað, sumir hefðu sagt, ég svitna eins og svín á þessu tímabili, en ekki ég því að ég er svo mikil dama ;) En hvernig er það fyrst ég er að blanda svínum í umræðuna.. svitna þau??? og annað... er ekki merkilegt að af öllum dýrum er hjartað í svínum líkast okkar!!! Hvaða kaldhæðni er það Guð? Ég bara spyr.

Í öðrum óspurðum fréttum... óspurðum og ekki óspurðum... ja með því að kíkja á síðuna mína þá eru þið í raun að óska eftir fréttum frá mér... sem sagt í öðrum fréttum er þetta helst og gleðilegast að ég er að fara að hætta í vinnunni minni... jeiii... reyndar er þetta æðisleg vinna en batteríið mitt var bara búið og ég er búin að vera á einhverjum aukaforða (sem er líka búinn) í langan tíma... en nú get ég bara talið niður og ég skal segja ykkur það að það eru 12 næturvaktir eftir! Til hamingju Ágústa að þú fæddist hér! Eins og þið sjáið er ég mjög sátt við þetta... og gleymi því alveg að ég veit ekkert hvað ég er að fara að gera.. en ég treysti Guði... ég ætla að tékka á nokkrum hugmyndum og ef þær ganga ekki þá er GUð með eitthvað annað og betra fyrir mig og fjölskylduna mína.

JÆJA... Páskarnir bara að koma, átti yndislegt spjall við Aron Elí í gær um páskana og allt sem gerðist þá... fyndið hvað spurningarnar verða þroskaðri frá ári til árs og hann er kominn með svo djúpan skilning á fagnaðarerindinu.... hann er í svona Biblíufíling núna, langar að vita meir og meir gjörsamlega þyrstir eftir meira.

Um daginn var ég að syngja lag sem heytir ,,Hold me now" og Aron Elí spyr "hvað ertu að syngja, hvað þýðir þetta" ég segist ætla að segja honum það þegar ég væri búin að bursta á honum tennurnar og við komin upp í rúm. Svo þegar hann er lagstur sit ég hjá honum og syng svona 2 setningar á ensku og segi honum svoo hvað þær þýða og svo framvegis... svo söng ég 5-6 setningar á ensku og týmdi ekki að slíta það í sundur því að ég sá að þetta var að hafa áhrif á hann (þó svo að hann skildi ekki) því að augun hans fylltust af tárum og hann teygði hendurnar í áttina að mér og faðmaði mig svo fast. Vá þetta var svo dýrmætt móment, Guð snerti á svo áberandi hátt við honum. Langaði bara að deila þessu með ykkur...

Við heyumst brátt aftur... takk fyrir bænirnar, þær virkuðu eins og alltaf, Guð er stórkoslegur!!!

Kveðja frá mér til ykkar...

Monday, April 10, 2006

Er á lífi...

Jæja... bara svona að láta vita að ég er á lífi... þetta hefur verið rosalega erfiður tími, heilsan mín er eitthvað að gefa sig og þess vegna hef ég látið tölvuna bara alveg í friði og ég er bara að reyna að ná þessu úr mér. Er frekar svekkt yfir að vera 27 ára með heilsu á við 72 ára... Guð er að vinna og ég verð bara að treysta því að þetta hafi einhvern tilgang sem ég mun skilja eftir smá stund. Ég þarf bara að fara að gera eitthvað heilbrigðara en að vinna á nóttunni það er ekki að fara vel með mig og fara að hreyfa mig, borða hollari mat og eitthvað.

Jæja ég hef ekki orku í meira...

Guð blessi ykkur og þið megið hafa mig og fjölskyldu mína í bænum ykkar.

Takk fyrir og sjáumst...
Ykkar Ágústa