Friday, June 30, 2006

Sumarið er dásamlegt!

Rosalega er gaman að lifa svona á sumrin...

Sundferðir eru stór partur af okkar lífi núna... fara út á peysunni er einnig algengt þessa dagana... notum mikið nýju sólargluggatjöldin sem við keyptum okkur... þríhjólaferðir eru ótrúlega vinsælar... fá að vera aðeins úti í garði í fótbolta eftir að það er komin "týpískur" háttatími... sumarið er yndislegt...

Ég fór upp á Skaga að horfa á litla kallinn minn (sem er ekkert lítill lengur, nær mér yfir brjóstin og er að fara í 3 bekk) keppa... hann stóð sig eins og hetja og skoraði 4 mörk á mótinu auk þess sem hann var fyrirliðinn... hann er að brillera í þessu enda er boltinn með segulstál við fæturnar á honum og sama hvað við bönnum honum að vera með boltan inni þá gleymir hann sér alltaf og er kominn hérna á stofugólfið og er að sóla upp völlinn... Ég var líka að brillera sem socker-mom... díííí hvað þetta var gaman... með uppörvunarorðin og hvatningarhrópinn á línunni... með frasana á hreinu... keeemur, íann-íann, láttann vaða, flott þetta halda áfram svona (klapp-klapp-klapp) jaaaaaaaaááááá það var lagið, glæsilegt skot!!! (hopp, hendur upp í loft og klappað ákaft á meðan drengurinn fer í sín heljarstökk og dansar fagnaðardans) hann fagnar aldrei eins og kallar þetta "mismunandi fögn" hahahahah svo yndislegur!

Stelpan mín er líka að blómstra... elskar að vera svona mikið úti og fá að sofa svolítið frameftir... elskar að busla í sundinu og er að standa sig svo vel á öllum sviðum... Það kom kona til mín í sundi og sagði að þessi stelpa ætti eftir að ná langt í framtíðinni, svo ákveðin og einbeitt væri hún... já ég held það nú bara... ég var að syngja um daginn "You make me feel lika a natural woman" og svo var hún farin að blasta það sama "jú meik í fíl læka vúúúman" ahhahah svo fyndið og svo þegar ég var að fara í stigspróf þá var ég að æfa skala og hún er með dúrskalan alveg á hreinu upp og niður! jábbs... börnin mín eru einstök ;) ég veit að allar mömmu segja það og það er það frábærasta við það... öll börn eru einmitt einstök bara á sinn hátt!!!!!

Maðurinn minn er dásamlegur líka og allt það.. nenni ekki að tíunda það núna... hann er bara frábær...

Við erum að fara til Spánar á fimmtudaginn í næstu viku, við fjögur og svo mamma og pabbi minn (sem eru einmitt þau bestu í heimi líka ;) ) og ég hlakka alveg svakalega til... úúú þvílíkt næs!!!

Í lokin ætla ég að setja nýjar myndir af nýjasta meðliminum... njótið vel!







Kærleikskveðja til ykkar frá mér...

-Ágústa Ósk

Sunday, June 18, 2006

Jæja gott fólk... allt fínt að frétta??

Rosa fínt hérna megin. Það er búið að vera mikið að gera, var í söngnáminu mínu á mán-mið og það var hreint út sagt GEGT sííís maður... snilld!

Svo fór ég að kíkja á litlu kisuna okkar, ég ætla að setja nokkrar myndir af okkur saman hérna...



Kannski smá úr fókus en það sést í gegn hversu sæt hún er



hérna er hún búin að pissa á mig :/ það voru blendnar tilfinningar því að hún Kolla(ræktandinn) hafði sagt mér fyrir nokkrum mánuðum að ef litlum kettlingum líður vel hjá viðkomandi þá merkja þær sér manneskjuna með því að pissa á hana, svo að það var kærkomið ;) en samt svolítið ógeðlegt að finna heitt kattarhland renna á milli brjóstanna á manni... hahahhaha



Henni leið svo vel hjá mér að hún malaði og sleikti mig, svo baðaði hún fótunum í allar áttir sem merkir öryggi ;)



Þetta var svo yndislegt og hún algjört yndi... lá hjá mér í 1 og 1/2 tíma... geggjað... feldurinn eins og dúnn... hlakka til að fá hana Önnu Myrru heim!

Sjáumst ;)

Thursday, June 15, 2006

Afmælisbörn dagsins

Þeir eiga afmæli í dag
þeir eiga afmæli í dag
þeir eiga afmæli Ingvar og sæmundur
þeir eiga afmæli í dag!!!

Tveir af mínum laaaanguppáhalds mönnum eiga afmæli í dag.

Ingvar maðurinn minn sem hefur reynst mér svo rosalega vel. Hann hefur stutt mig í gegnum súrt og sætt... Ég get sagt það með góðri samvisku að ég er orðin betri manneskja bara á því að umgangast hann svona mikið... Frábær í alla staði, hlakka til að eiða ævinni með honum. Elska hann.

Sæmundur elskulegur bróðir minn. Einn sá yndislegasti sem ég þekki. Hefur reynt margt en stendur alltaf og stendur sig geggjað vel... ég er stolt af því að þekkja hann og vera svona tengd honum. ég vil meina það að ég eigi helling í honum og ég elska hann ofur heitt...

Ég er svo ánægð með þessa karlmenn í lífi mínu... reyndar eru nokkrir í viðbót sem eru alveg frábærir en ég ætla að tileinka þessa færslu þessum tveimur...

Ég elska ykkur!!!

Ykkar Ágústa

Saturday, June 10, 2006

Lífið er gott!

Góðan daginn...

Hvað segið þið gott? Ég segi allavegana allt gott... blessun á blessun ofan hér á bæ. Já Guð er svo sannarlega góður Guð. Það helsta í fréttum er það að búðin gegnur ROSALEGA vel og erum við að fíla okkur í þessu hlutverki, að þjóna viðskiptavininum þar til hann er geggggjað ánægður og erum við að sjá mikinn ávöxt af þessu.

Ég er nú á fullu að sækja um undanþágu til þess að geta stundað söngnámið mitt í FÍH á næsta ári. Ég er orðin 27 ára og því borgar Reykjavíkurborg ekki niður skólan minn svo að ég þurfti að sækja um undanþágu. Ég fékk svakalega góðar einkunnir í vor á III. stigs prófinu mínu, í tónfærði og hrynþjálfun. Og ég hef verið að fá geggjuð meðmæli hjá söngkennaranum mínum og Óskari svo að þetta er mjög jákvætt, vonandi er það bara Guðs vilji að ég verði þarna áfram næsta vetur... en ég segi VERÐI GUÐS VILJI... því að hann er sá besti fyrir okkur. (mont mont kafli búinn)

Já kemur smá mont kafli í viðbót...



Þetta er nýjasti fjölskyldumeðlimurinn... hún er 2 og 1/2 vikna og fáum við hana í ágúst heim... hún er hreinræktaður persi og er algjörlega yndisleg... við höfum verið að bíða eftir kettling síðan í febrúar og loksins sjáum við fyrir endan á þessari bið... takk elsku elsku Kolla mín, hún er fullkomin og við hlökkum alveg svakalega til og munum hugsa rosalega vel um hana ;) Love you!!! Endilega kíkið á fleiri myndir af litlunni okkar á http://gullkisi.com og systrum hennar. Þar getið þið líka lesið um karakter persana og fleira.. þetta eru alveg sérstök dýr!

Já lífið er gott!

Þetta er gott í bili... bið Guðs blessun yfir líf ykkar...

Ykkar Ágústa